11.6.2009 | 21:34
Og þá eru það tré
Við settum niður nokkrar birkiplöntur. Tæmdum heilan gám af mold og fylltum hann af leirdrullu. Roguðumst með stóra steina, fullar hjólbörur og fullar skóflur fram og til baka. Er orðin þokkalega lúin. Hef þó trú á því að einhverntíman verði þetta nú orðið fínt hjá okkur þó við förum hægt í þetta og eingöngu með handafli. Kemur allt með kalda vatninu.
Best er að veðrið hefur verið svo ótrúlega gott síðustu daga að maður fæst varla til að fara inn.
Beisarinn kom í heimsókn. Þau tóku sig til og keyptu sér húsbíl þau gömlu og Beisarinn kom suður til að sækja kaggann. Sonurinn var svo spenntur, hann langaði sko að sofa í bílnum hans afa og hann kepptist við að segja mér hvað afi væri besti vinur hans og amma líka.
Og svo fór hann að sækja ömmu "Þrífu" á þríhjólinu sínu. Amma Þrífa eða amma Fríða, hver heyrir muninn!
Ætla að leggjast í skemmtiferðaskipið og glápa á imbann.
The
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.6.2009 | 19:33
Heyannir
Kannski ekki miklar annir en feðgarnir fóru út að slá grasið í fyrsta sinn. Þeir valsa um flötina, hver með sinn Peltorinn og drengurinn í essinu sínu. Hann er reyndar örlítið smeykur við hávaðann og leiðir pabba sinn en er greinilega mjög áhugasamur.
Annars höfum við mokað fyrir allan peninginn undanfarið, við erum búin að moka fyrir limgerði og fengum fullan gám af mold til að setja í staðin fyrir það sem kom upp úr skurðunum. Síðan þurfum við að setja í gáminn slatta af efni sem ekki er nothæft og þeir í moldarsölunni losa okkur við. Ekki hægt að segja annað en að hendur og bök séu aðeins að lúna en við látum það ekki á okkur fá og höldum áfram þar til allt er orðið klárt. Það er nefnilega komið sumar og sumarið er tíminn!
The
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.4.2009 | 22:37
Heima er best.
Eins og mér þykir nú gaman að ferðast þá er svo ótrúlega gott að koma heim til sín aftur.
Við erum sem sagt búin að vera í tveggja vikna fríi, byrjuðum á Akureyri þar sem við skíðuðum, fórum í sund, heimsóttum Móðu (hennar Elínar) og slökkviliðsmanninn, Önnsku og afmælisdrenginn og gerðum ýmislegt fleira. Á Akureyri snjóaði alla dagana sem við vorum þarna og skíðafærið var ágætt. Stúfurinn fór á skíði í fyrsta skiptið og ég á ekki til orð yfir Töfrateppinu þeirra norðanmanna, þetta er svohoo sniðugt og fer svo vel með bakið á foreldrunum. Af hverju eru ekki svona færibönd á fleiri skíðasvæðum.
Frá Akureyri keyrðum við svo vestur á skíðaviku og erum búin að vera í dekri og slökun hjá ma og pa ásamt Lommanum, Cameldýrinu og þeirra afkvæmum. Liztamaðurinn var of seinn að panta gistingu svo hann þurfti að redda sér annars staðar! :D
Brettin voru að sjálfsögðu rifin upp og notuð vel og svo fór ég líka nokkrar ferðir á gömlu góðu 1.85 skíðunum mínum sem runnu reyndar frekar illa enda ekki fengið að renna neitt síðustu 10 árin eða svo. Gaman engu að síður þó ég hafi nú skipt yfir í brettið áður en dagurinn var á enda.
En núna erum við komin heim í kotið og þvottafjallið svo stórt að ég sé ekki fram á að klára það fyrr en í næsta mánuði. Og enn er einn frídagur eftir. Best að nota hann til að gera ekki neitt nema kannski borða páskaeggið sem hér stendur! :D
Gleðilega páska.
Þ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.3.2009 | 11:07
Húmoristar
Sum fyrirtækjanöfn finnst mér frekar hallærisleg.
Það á þó ekki við um þetta hér! 
Fá sko stjörnu í kladdann frá mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.3.2009 | 10:02
Ammæli
Til hamingju með afmælið Davíð minn.
Kórfélagar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.1.2009 | 09:11
Samtal fyrir svefninn
BB2: Mamma, það má ekki rífa af þér hausinn.
Mamman: ehhh... hva... nei er það nokkuð?
BB2: Nei þá geturðu nefnilega ekki talað!
Eins gott hann er með forganginn í lagi drengurinn! 
Þ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2008 | 12:00
Smá þreyta í gangi
Fór með soninn í jólagjafaleiðangur strax eftir leikskóla.
Setti hann í innkaupakörfu því hann var svo latur að labba sjálfur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.12.2008 | 19:40
Tannsi og ofnæmispróf
Við fórum í tvær læknaheimsóknir með soninn í gær. Fyrst fórum við til tannlæknis með hann og það gekk líka svona rosalega vel. Hann sleppti því að bíta tannlækninn og fór út með bíl í verðlaun.
Síðan fórum við í ofnæmisprófið. Hann var álíka þægur þar og rétti bara fram hendina svo læknirinn gæti "skrifað" á hann en honum þykir það svolítið sport.
Niðurstöðurnar voru svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir, hnetuofnæmið er enn, eggjaofnæmið hefur minnkað örlítið en svo svaraði hann hesta, katta og soya. Það er þó ekki það slæmt að við þurfum að vera að halda því frá honum. Það yrði frekar óheppilegt ef að hestaofnæmið færi að trufla hann, eigandi fjölskylduna í hestamennsku.
En hann er að öðri leyti sprækur sem lækur drengurinn, vildi alls ekki koma heim af leikskólanum í dag því hann var að leika við vinkonu sína. Það er alltaf svo gaman hjá þeim.
Smá samtal í fataklefanum:
Ég að kalla á BB2: Komdu nú ástin mín, við þurfum að fara að klæða okkur.
Hildur vinkonan: Hann er ekki ástin, hann er BENEDIKT!
Bara svona svo við höfum það á hreinu!
Þ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2008 | 20:01
Lögguvísur
"Mamma, syngjum lögguvísur" sagði sonurinn í dag. Ég sagðist ekki þekkja neinar lögguvísur, hann þyrfti að kenna mér þær. Þá fór drengurinn að syngja "Dvel ég í draumahöll"!
Löggu, vöggu, er einhver munur á því? 
Þ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.11.2008 | 21:30
Afi ammæli
Hann pabbi minn kæri á afmæli í dag.
Til hamingju með daginn essgan.
Svo átti Björgúlfur bróðursonur minn afmæli í gær, hann fær líka afmæliskveðjur frá okkur hérna í kórnum.
Sonurinn var sofnaður FYRIR klukkan átta. Það hefur ekki gerst í marga mánuði, hann er yfirleitt mjög sprækur á kvöldin og er sko ekki til í að fara að sofa þegar hann á að fara að sofa. En í dag var hann svo rosalega þreyttur, vældi og var með allt á hornum sér, og sofnaði rétt fyrir átta. Ég þarf greinilega að senda hann oftar í heimsókn til nágrannans en hann fékk nefnilega að fara þangað eftir leikskóla. Það hefur greinilega gengið mikið á þarna hinu megin! 
Annars er ég farin að halda að í kreppunni hafi helgarnar styst, þessi helgi var svo ótrúlega stutt, fannst hún varla hafa verið byrjuð þegar hún var búin. Hver stendur eiginlega fyrir þessu?
Ég náttla gleymdi þessu, aulinn ég:
Til hamingju með 40 ára brúðkaupsafmælið mamma og pabbi! 
Þ
Bloggar | Breytt 12.11.2008 kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tenglar
Allskonar vefir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 17282
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

arndiz
doramaggy
erlasighvats
gargantua
heidabj
heimskyr
alberta
evorally
daglegurdenni
hallsteinn
linduspjall
ylfamist